måndag 10 mars 2008

Danmerkurhittingur

Eins og frægt er orðið hittumst við nokkrar norðurlandaskvísur hjá henni Sigrúnu Önnu og höfðum svoooo gaman! Afköstin voru nú mismikil en ég hafði sko vinninginn í framleiðslunni, heilar átta síður! :o)

Fyrsta síðan er um Lucia dagen í Svíþjóð sem haldinn er 13. des. Hérna eru krakkarnir á leikskólanum hennar Lilju að syngja lagið um Luciu, og litla músin mín situr ein á fremsta bekk eftir að allir hinir krakkarnir af yngstu deildinni höfðu hlaupið grátandi í fangið á foreldrum sínum. Ég á sko hugrökkustu snúlluna á deildinni!

Næsta síða er unnin eftir LO sem Erla Rún skoraði á okkur að vinna eftir og svo var könnun skellt inn á sb.is og lenti ég í þriðja sæti :o) Þessar myndir eru teknar í ungbarnasundi og það er svo krúttlegt að Lilja var með aðeins of þungan rass til að geta staðið í hendinni á sundkennaranum þannig að hún fékk bara að sitja í staðin. hehehehe.
Mig hefur alltaf langað til að gera síðu um nokkur persónueinkenni Lilju en mér hefur hingað til fundist hún of ung til að gera þannig síðu, en núna er persónuleikinn orðinn ansi mótaður og því ákvað ég að skella í þessa síðu. Dútlið er embossað með white-iris og stimplað með hvítu pigment ínki. (takk Erla Rún fyrir lánið á hitabyssu, Þórunn fyrir lán á dútlstimpli og Fanney fyrir lán á dufti). Titilinn gerði ég með því að mála fyrst með brúnni mm málningu, málaði svo yfir með crackle-lakki sem ég keypti í Danmörku, og málaði svo yfir með bláu. Ekkert smá ánægð með að hafa fjárfest í þessu lakki.

Þessa síðu var ég líka lengi búin að plana að gera - smá brot af orðum sem Lilja var farin að segja 18 mánaða. Allt í allt kunni hún um 60 orð og ég valdi út nokkur krúttleg.

Ég var lengi búin að vandræðast með þessar myndir - vissi ekki hvaða pappír ég átti að nota til að gera hana jólalega, því litirnir í henni eru kannski ekki alveg þeir jólalegustu. En svo rakst ég á þennan pappír í Danmörku og hann smellpassaði við myndirnar. Svo lét ég silhouettinn hennar Fanneyjar skera út jólatréð fyrir mig - algjör snilldargræjaj sem tekur nokkrar sekúndur í eitthvað sem tæki mig muuuun lengri tíma að gera. Borðann verslaði ég líka í DK.
Þessar myndir tók ég á Íslandi um jólin þar sem þær frænkurnar eru að hoppa í rúminu hjá ömmu og afa. Titillinn og hringirnir eru frá sömu línu (man ekki hvað heitir) og eru upphleyptir. Ég á eftir að skipta um myndir - þessar eru bara prentaðar á venjulegan pappír því ljósmyndapappírinn minn var búinn.

Þessari síðu byrjaði ég á um kl. 3 að nóttu til og kláraði á sunnudeginum. Var ekki viss hvernig ég ætti að geta gert bleika síðu áramótalega og byrjaði því bara að leika mér aðeins með málninguna sem endaði í þessum fínu bleiku sprengjum með grænu glimmeri. Blómin fékk ég í leynivinagjöfinni minni frá Pálínu, þau pössuðu svo vel við - bæði bleik og með glimmeri. Glimmerstafina fékk ég í afmælisgjöf - en það voru ekki tölustafir á örkinni þannig að ég tók eitt "L" og eitt "B" og fiffaði þetta til.

onsdag 6 februari 2008

Meira skrapp

Áfram heldur skrappstuðið mitt! :o) Ég gerði eina opnu um daginn og var að skella í eina síðu núna í kvöld.


Á opnunni eru myndir frá því að við Lilja fórum til Malmö fyrir jól til að skoða jólaljósin og upplifa stemninguna, þar fór hún m.a. á hestbak og spjallaði við jólasveininn. Þetta var yndislegur dagur.


Ég notaði bara hvítan, rauðan og svartan cardstock (eða hvað sem þetta nú heitir) og skar út scallop kanta á rauða pappírinn. Þetta svarta er lace frá ki memories... alveg sjúklega töff! Ég á þetta í nokkrum týpum, og það er svo gaman að vinna með þetta.










Síðan sem ég var að klára datt eiginlega bara óvart saman. Ég ætlaði að byrja á því að taka þátt í tveimur áskorunum í einu, hafa brúnan pappír í bakgrunn og nota borða frá Áslaug Ott sem ég fékk sendan í vikunni. Ég ætlaði að nota myndir frá þrettándanum, og langaði að nota þennan pappír. En þá fannst mér myndirnar ekki passa nógu vel við pappírinn og fann því nýjar myndir. Svo langaði mig að hafa meira bleikt heldur en brúnt þannig að bakgrunnspappírinn fékk að fjúka, svo fannst mér borðinn ekki passa á síðuna og ákvað að geyma þá áskorun þar til seinna.

En þetta varð s.s. afraksturinn. Ég notaði mikið af afmælisgjöfum og jólagjöfum sem ég hef fengið. "h"-ið er úr jólagjöfinni frá Pálínu, borðinn er frá Dízunni og blómin eru frá Hófí. Pappírinn er noteworthy frá mm, alveg sjúklega flottur! LO er bara eitthvað út í loftið.

söndag 27 januari 2008

Komin á skrið






Loksins er ég komin í gang aftur, og þá er sko ekkert sem stoppar mig! Á einum sólarhring gerði ég 5 síður, s.s. eina staka síður og tvær opnur.






Hérna koma herlegheitin.......


Þessa mynd tók ég af Lilju í haust þegar við vorum að bíða eftir strætó á leiðinni í leikskólann. Er litla snúllan mín ekki falleg!? :o) LO er eftir hönnukj, cb er frá Pálínu leynivininum mínum, pappírinn og blómin undir myndinni keypti ég hérna úti, en man ekki hvað þetta heitir. Ef þið viljið vita það þá getið þið bara spurt í kommentakerfinu, og þá skal ég tjékka á því.Hérna koma svo myndir úr afmælinu hennar Lilju. Ég tók myndir af öllum litlu gestunum við matarborðið og langaði endilega að koma þeim á síðuna, og líka gjöfunum hennar... þannig að það urðu ansi margar myndir og þær urðu frekar litlar til að koma þeim fyrir, en það er bara í góðu lagi. Ég keypti þennan pappír með afmælissíður í huga. Pössuðu svo bara ansi vel við myndirnar.

Þessar myndir eru úr myndatöku í leikskólanum í haust. Ég var ekkert smá ánægð með útkomuna á myndunum. LO er ósköp einfalt, en ég fattaði það svo ekki fyrr en eftirá hvað litirnir pössuðu vel því að hún er á leikskólanum sem heitir Röda stugan (rauði bústaðurinn) og svo er hún á bláu deildinni... rautt og blátt :0) Var að vandræðast með hvað ég ætti að nota til að skrifa journalið, náði svo bara í trélitina hennar Lilju og reddaði mér.

tisdag 4 december 2007

Mars

Nú er heimaprófinu lokið og þá get ég farið að snúa mér að öðrum og skemmtilegri hlutum. Ég var að enda við að skella í eina síðu í dagatalið sem mun verða jólagjöf handa foreldrum mínum... ussss, ekki segja þeim!



Ég vann eftir þessari skissu frá pagemaps.




söndag 25 november 2007

Fyrsta digi-skrappið

Ég prófaði mitt fyrsta digi-skrapp í dag og þetta er alveg æðislega gaman. Ég ætla að gefa ömmu og afa Lilju dagatal með þeim frænkunum í jólagjöf og var þetta fyrsta prufan. Ég fann þetta kitt bara einhversstaðar á netinu, man ekki hvar. Ég er að fara að byrja í vikulöngu heimaprófi á morgun og kannski ég vinni aðeins í dagatalinu svona í pásunum.



Hérna er svo síða nr. 2. Var enga stunda að þessu, fínt að dunda við þetta fyrir framan sjónvarpið.


fredag 2 november 2007

Geðsjúklingur

Nú held ég að ég sé komin yfirum af lestri og Red Bull drykkju. Mikið er ég fegin að það er skiladagur í dag... mér er alveg sama þó að þetta sé ekkert vel gert hjá mér, ég vil bara losna við þetta próf svo ég geti farið að skrappa! Þessi mynd sýnir hvar ég er búin að sitja síðustu vikuna.


Hérna er það sem ég er búin að vera að dunda mér við að gera síðasta hálftímann, í staðin fyrir að vera að læra.








Jæja.... best að halda áfram að læra!!! Bara örfáir klukkutímar eftir.

onsdag 31 oktober 2007


Var að fá stimplasendinguna mína frá Kaliforníu... takk kææærlega fyrir, Arnheiður mín! *smúúútssss*

Ég á að sjálfsögðu að vera að læra en þegar tilkynningin um pakkan kom inn um lúguna var ég ekki lengi að hlaupa út á pósthús að sækja pakkann og núna sit ég hérna í sófanum umkringd af allskonar æðislegu dóti. Ég er aðeins búin að prófa nýju litina mína en ég ætla að bíða með að opna nýju stimplana þar til eftir prófið. Þessi stimpill er í eigu Gógóar, og mér finnst hann alveg sjúklega sætur!